Klukkan
22.06.2007 09:27:17 / mystique

Föstudagur

Ég er farin að sjá að ég verð greinilega að blogga eitthvað hérna... Fólk hreinlega hrúgast hérna inn :D

 Það er í sjálfu sér ekki mikið að segja frá.... Teresa er útskrifuð úr tilraunaleikskólanum... Við erum búin að selja sjoppuna og íbúðin er öll að koma til....

Við fjölskyldan ætlum að fara að veiða á sunnudaginn... Þá er veiðidagur fjölskyldunar.. ég mæli með þessu... svaka gaman fyrir krakkana....

 dúdelú


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 12:04:55 / mystique

að selja fasteign

Trúið mér... samskipti við fasteignasala eru ekki alltaf auðveld..

 Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá hef ég keypt og selt fasteign svona einusinni eða tvisvar áður en aldrei hef ég lent í öðru eins...

Ég set hér inn samskipti mín og "sölufulltrúans" sem voru á tölvupósti, ég lofa ég breytti ekki neinu nema ég tók út "nafnspjaldið" hennar... ég hafði sent þessi samskipti á löglilta fasteignasalan sem í raun ber ábyrgð á sölunni en hann svaraði mér ekki... þannig að ég fór í morgun og talaði við hann... Hann sagði í grófum dráttum að þetta væri rifrildi milli tveggja kvenna og að við (ég) ættum að eyða tíma okkar í eitthvað annað en að rífast og að horfa aftur fyrir okkur.. Ég bennti honum á að ég væri að borga henni fyrir þjónustu sem mér þætti ekki vera fullnægjandi fyrir utna það hvernig hún talar við mig í svarinu sem hún sendi mér... hann sagði við mig að hún væri náttúrulega komin þetta langt á leið (ólétt).... ég get svo svarið það, það datt af mér anlitið.. hann sagði líka að ég hafi verið hvöss við hana í bréfinu sem ég sendi og að hún hafi svarað hvasst tilbaka.......

hér kemur þetta....

  Sæl Svava
Ég er ekki nógu sátt við það hvernig þetta sölu ferli hefur verið.
Ég veit að ég var sjálf í tímakreppu vegna afsals greiðslu sem ég sjálf átti að standa við en miðað við eðlilega lengd á ferli hefði kaupsamningur vel átt að nást áður en ég myndi lenda í vandræðum.
Við skrifum undir kauptilboð 13 apríl og kaupandi átti strax að fara að vinna í því að ganga frá lána málum, en þar varð einhver misskilningur og það kom ekki í ljós fyrr en í kring um 26-27 apríl (svo ég viti) að það var ekki búðið að sækja um yfirtöku Íbúðalánasjóðs lánsins. Mér finnst mjög skrítið að það hafi svo tekið viku að redda því og koma því til íbúðalánasjóðs en það var raunin því íbúðalánasjóður fékk ekki umsóknina fyrr en  Fimmtudaginn 3.Maí.
Ég hafði svo samband sjálf við Íbúðalánasjóð í gær til að fá að vita stöðuna og mér bennt á að tala við Antoníu því að ég vildi fá málinu flýtt. Ég náið ekki sambandi við hana fyrr en í morgun og þá sagði hún mér að þau hafi ekki fengið þau fylgigögn sem fasteignasali á að útvega fyrr en í gær 7. maí um kl.13.00 og að kauptilboðið sem þau fengu hafi verið ill læsilegt vegna þess að það hafi verið faxað framm og tilbaka og að þau þyrftu að fá það sent aftur... Ég fékk heldur mikið sjokk og sat hérna skjálfandi í sætinu að reyna að finna lausn á þessu máli.. Ég reyndi að ná í þig á fasteigna söluna en þú varst ekki mætt þannig að ég talaði við að ég held Sigurlaugu því ég þurfti að láta senda kauptilboðið aftur upp í íbúðalánasjóð..
Eftir að ég talaði við hana áttaði ég mig á því að ég væri enn með kauptilboðið mitt hér í vinnuni en það vantaði undir skriftina hans Ayo.
Ég hringdi í hann og sem betur fer var hann ekki farin austur því ég gat látið hann skrifa undir og sent það sjálf inn í Íbúðalánasjóð, sem ég gerði. 
Þetta ferli hefur verið mjög stressandi fyrir mig,  fyrir utan það að ég þurfti að taka yfirdrátt upp á 2,1milljón sem ég hefði ekki þurft að gera hefði þetta ferli gengið eðlilega fyrir sig.
Ég vænti þess að sölu laun og gagnasöfnunar gjald verði í samræmi við þá þjónustu sem ég hef fengið.
Kveðja Iða Brá Kuforiji
Blessið Iða.

Mér finnst leiðinlegt hvað þú ert að reyna koma þessari sök yfir á mig. Það er reynar að verða solið pirrandi. Þú getur tala við kristofer það er náunginn sem sér um öll málin fyrir fólkið sem er að kaupa þína fasteign. Síminn hjá honum er 480-2304. Það er ekki í mínum verkahríng að fara í greiðslumat hjá fyrir viðskipta vini okkar. Ég lét þau vita að núna þurfa þau að fara á fullt í að fá nýja lánið og að hafa samband við íbúðarlánasjóð til að sækja um að yfirtaka lánið frá þeim. Þau eru með kaupsamninginn sjálf. En ég bauðst til að faxa til íbúðarlánasjóð fyrir þau ef þau vildu. Það er mjög algengt að þjónustufulltrúi hafi samand við okkur upp á að fá kauptilboðin ef viðskiptavinurinn fer ekki með það sjálfur. En þau miskildu þetta ekki einu sinni heldur tvistar sinnum.

Því ég er búinn að vera með Kristofer í símanum alla daga síðan ég heyrði í þér. Eins er hann með þennan blessaða kaupsamning og hann átti að sjá um þetta fyrir þau og senda til þeirra kaupsamninginn.En vegna þess að ég er búin að hringja á hverju degi í íbúðarlánasjóð þá létu þau mig vita í gær að umsóknin væri komin en ekki kauptilboðið svo ég sendi það til þeirra. Svo þó svo þú villt ekki hlusta á það sem ég er búinn að reyna að segja þér þá er þetta ekki mín mistök og ég nenni ekki að heyra það aftur. Ég er búin að gera allt sem ég get í þessu tilviki og miklu meira en það. Þó þessi bið er að valda þér áhyggjum þá er það EKKI MÉR AÐ KENNA. það er bara þannig. ÞETTA ER AÐ TAKA SVONA LANGAN TÍMA VENGA ÞESS AÐ KAUPANDINN HEFUR EKKI GERT ÞAÐ SEM HANN ÁTTI AÐ GERA. EKKI ÉG. vona að þetta sé nógu skýrt núna.

 

 

Sæl aftur

Ég veit ekki betur en ég hafi verið neitt nema allmennileg við þig og aldrei sagt að nokkur skapaði hlutur væri þér að kenna. Það eina sem ég spurði þig að er hvernig stæði á því að kaupandi hafi haldið að þú ættir að sækja um lánið og ég man að þú fórst bara í vörn og að það væri ekki hægt að finna sökuldólg í því.

En er það ekki á þinni ábyrgð að hlutirnir gangi eðlilega fyrir sig?

Kveðja Iða

Blessuð.

Þetta er bara leiðinlegt hvað þetta er búið að dragast. Mér finnst það alveg jafnleiðinlegt og ´þér trúðu mér. Enda er ég búin að liggja yfir þessu og hringja á hverjum degi í kaupanda, bankann þeirra og svo íbúðarlánasjóð.

Meira get ég ekki gert.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 17:16:31 / mystique

Mánudags blogg

Jebb það er komin mánudagur og bara 4 dagar í næstu helgi :D

Íbúðin er aðeins farin að taka á sig útlit íbúðarhúsnæðis... sem er gott... Við erum að setja upp innréttinguna og bíðum svo bara eftir pabba til að tengja rafmagnið og vatnið...

Þessi helgi var aðeins viðburða ríkari en áður gengnar helgar .... Tók móðursýkis kast á Sveilí og DP.. Ég ætlaði sko með á djammið.... Tróð mér þar af leiðandi í innflutnings partý sem þær voru í ... ógeð gaman.... sumir voru aftur á móti mis hressir í leigubílnum og létu sig bara hverfa þegar það var komið niður í bæ..... ég aftur á móti dansaði svo mikið að mér er enn illt í lærunum.......

 Við hjónin ætluðum að djamma á laugardaginn en enduðum heima hjá vini hans herra Tík og vorum þar að sötra til kl. 6 um morguninn...

Þar af leiðandi var lítið unnið í íbúðinni þessa helgina......

svo erum við loksins búin að selja fyrir austan jibbí :D

jæja það er svosem ekki miðið annað að segja frá.... Túdelú.... :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 09:09:53 / mystique

Þá eru páskarnir búnir

Hellú

 

Nú er páskafríið búið :S ... ekki það að þetta hafi verið mikið frí... Stelpan veiktist mjög snemma morguns Föstudagsins langa, kom til mín og sagið "mamma ég gubbaði" :$ og það var líka yfir allan sófan (hún sefur enn í stofunni 8| )...... þannig að hún var veik alla páskana.. en það var samt fínt... fórum austur og höfðum það gott...

 Ég fékk svo sms í gær frá Sveilí sem var svona sirka .... Sko ég og kisa og hjúkka ætlum að verða mjóar.. ekki ætlar þú að láta okkur verða mjóar á undan þér ....  Ég hugsaði náttúrulega NEI hingað og ekki lengra.. ég ætla að byrja á hreinum kúr í dag :haha: ég vil, ég skal og ég ætla :klikk:

 

hef ekki mikið meira að segja... please give me some djamm stories

 Bæjó


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 18:14:09 / mystique

híhíhí


Five tips for a woman....

1. It is important that a man helps you around the house.

2. It is important that a man makes you laugh.


3. It is important to find a man you can count on and doesn't lie to you.

4. It is important that a man loves you and spoils you.

5. It is important that these four men don't know each other.


There was this couple that had been married for 20 years. Every time they
made love the husband always insisted on shutting off the light.
Well,after 20 years the wife felt this was ridiculous.  She figured she
would break him out of this crazy habit. So one night, while  they were in
the middle of a wild, screaming, romantic session, she turned  on the
lights.  She looked down... and saw her husband was holding a
battery-operated leisure device... a vibrator! Soft, wonderful and larger
than a real one. She went completely ballistic. "You impotent bastard," She
screamed at  him, "how could you be lying to me all of these years? You
better explain  yourself!" The husband looks her straight in the eyes and
says calmly:  "I'll explain the toy . . . you explain the kids."


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 13:35:29 / mystique

ætli það sé ekki komin tími á blogg

jæja þá er helgin búin :S en næsta allveg að koma 8)

Herra Tík hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn.... í hálfri íbúð :S en það var fínt bara.. rólegt og átti bara að vera svona nánustu vinir.. það komu 2 með með auka fólk með sér... ég var ekkert voðalega hrifin.. hefði nú ekki samþykkt að halda partý ef ég hefði vitað að það kæmi eitthvað ókunnugt fólk.... en þetta var bara fínt... bollan kláraðist og var mér kennt þar um :evil: ekki satt.... fórum snemma í bæin og svo snemma heim...

Það var hringt í mig af leikskólanum í morgun... Stelpan datt í íþróttum, fékk þvílikar blóðnasir og það lostnaði tönn :S ég er sem sagt að fara með hana til tannlæknis á eftir ekki kát... ég fer að pakka henni inn í bómull :lol:

 Annars er ekki mikið í gangi erum bara enn að reyna að koma þessari blessuðu íbúð í stand.

 see ya


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 18:50:29 / mystique

Brandari

Ég bara varð að setja þennan inn því þetta er svo satt a:haha: 
Does it really pay to be a Nigerian?
A man dies & goes to hell.
There he finds that there is a different hell for each country and decides he'll pick the least painful to spend his eternity.
He goes to German hell & asks, "what do they do here?"
He is told
"first they put you in an electric chair for an hour.
Then they lay you on a bed of nails for another hour.
Then the German devil comes in and whips you for the rest of the day".
The man does not like the sound of that at all so he moves on.
He checks out the USA hell as well as the Russian hell and many more.He discovers that they are all similar to the German hell.!
Then he comes to the Nigerian hell and finds that there is a long line of people waiting to get in... Amazed, he asks, "What do they do here?"
He is told "first they put you in an electric chair for an hour,
then they lay you on a bed of nails for another hour.
The Nigerian devil comes in & whips you for the rest of the day."But that is exactly the same as all the other hells, why are there so many people waiting to get in?" asks the man.
"Because there is never any electricity so the electric chair does not work.
The nails were paid for but never supplied, so the bed is comfortable to sleep on.And the Nigerian devil used to be a civil servant, so he comes in,signs his time sheet and goes back home for private business."

( FOR ONCE, IT PAYS TO BE A NIGERIAN)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 10:52:36 / mystique

hálf flutt inn

Við hálf fluttum inn í íbúðina um helgina... búin að setja upp rúmmið og það eru komnir fata skápar sem eru núna fullir af fötum en ekki með hurðum :S... við erum ekki enn komin með baðherbergi eða eldhús... þannig að við notum klósettið hennar Heiðu niðri og svo hefur Dominos verið mjög duglegur að redda okkur mat..

 Við erum búin að gera smá stofu úr svona helmingnum af stofuni.. settum sófa og sófaborð og gerðum smá kósí þar... Sveilí og Ólí kíktu á herra og frú Tík á laugardagskvöldið... fengum okkur aðeins í aðra tána og kíktum svo í bæin.... EN það var Partý á efri hæðinni og það væri ekki frásögufærandi nema hvað.... það voru blindfullar grindhoraðar unglings Pí*ur ælandi út um allt reykjandi út um allt og rífandi kjaft aaarrrggg ég var pirruð :whut:... svo strákarnir pissandi út um allt og hendandi sígarettu stubbum út um allt...... ég var ekki kát :frown:... Ekki bara það þá var hurðinni sparkað upp í herberginu hennar Heiðu þar sem kærastinn hennar var og stelpan mín :evil:... þannig að ég var ekkert kát þegar við vorum að fara í bæinn.... Herra Tík spurði hvort ég væri ekki örugglega með lykkla.... ég skelti hurðinni og kíkti svo í töskuna mína :S við vorum sem sagt læst úti..... ekki til þess að bæta skapið hjá mér... en what the fuck... við fórum bara í bæin skriðum svo inn hjá mömmu og pabba og sváfum úr okkur og létum Heiðu troða sér inn um minnsta gluggan á húsinu :haha:  og fórum í playstation 

nóg í bili :D túdelú


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 12:04:29 / mystique

Búin að losa fyrir austan :D

AAAARRRRGGGG OMG þvílíkur léttir

 

Ég er búin að losa fyrir austan og koma húsinu í leigu... Við stefnum á að koma systir minni inn um helgina og fara svo að vinna á fullu í okkar hluta íbúðarinnar :) ...... En þar sem við erum búin að tæma fyrir austan og troða heilu innbúi inn í 3 herbergi er ekki mikið pláss til að athafna sig... en þetta hefst :lol: Og það fer að styttast í alheimsdrottninga.innfluttningsparty@mystique.is

 

Við hjónin fórum á árshátíð um helgina og það var líka svona svakalega gaman. Verslunarstjóri, aðstoðar verslunarstjóri og fleiri karlmenn sem ég vinn með ákváðu að breika. OMG ég meig næstum á mig úr hlátri :D . Maturinn var frábær og skemmtiatriðin fín. Fór svo bara heima að sofa að því lokknu, lét drottningarnar mínar um að repricenta mig í bænum :S

 

Allar drottningar eiga að athuga hvað þær eru mikklar dramadrottningar hér fyrir neðan og láta okkur vita hvort þær séu rare, medium rare, medium eða well done


Þú ert miðlungssteikt dramadrottning.

Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust
"rare", "medium rare", "medium" eða "well done" værir þú "medium". Miðlungssteiktar dramadrottningar eru konur meðalhófs. Þær eru skynsemisverur miklar, hafa sterka réttlætiskennd og vilja öllum vel. Í raun myndu flestar miðlungssteiktar dramadrottningar frekar vilja vera baunabuff en hamborgari því þá hefðu engin saklaus dýr þurft að líða fyrir samlíkinguna.



Miðlungssteiktar dramadrottningar hafa algera stjórn á dramatíska hluta heilans. Í raun verður sjaldan vart dramatískrar hegðunar hjá hinni miðlungssteiktu. Ekki einu sinni slæmur hárdagur getur raskað ró hennar.



Miðlungssteiktar dramadrottningar eru hæglátar, yfirvegaðar en fylgispakar. Þær eru trúar leiðtoga sínum sem er gjarnan léttsteikta dramadrottningin og fylgja henni oft í blindni. Þegar á reynir er hún hins vegar ekki tilbúin til að hvika frá sannfæringu sinni og á það til að vera samviska þeirrar léttsteiktu og halda henni á jörðinni.

Prufið þetta www.dramadrottning.com

 

Any whoos þá er stelpan bara kát og glöð

Tútelú

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 09:02:44 / mystique

Hvað varð um drottningarnar?

Jæja.. I need some explanation.....

Við vorum í alheimsdrottninga.innflutningsparty@dp.is og ég var eina drottningin sem komst niður í bæ...... Hjúkkan var reyndar búin að segjast ekki ætla að fara því hún er nottla hetja á kúr og var líka að vinna....... En Kisa hummm...... Ég var búin að vera að velta því fyrir mér hvað ég ætti að fá mér að borða því ég var nottla að fara að drekka .. kisa bara nei sko DP býður alltaf upp á eitthvað þannig að við þurfum ekkert að borða 8| .... jæja... hvor okkar komst niður í bæ :lol: .... svo miss DP sjálf.... taka trefilin og töskuna svo fólk haldi að hún sé á leiðinni í leigubílin segir svo bara góða nótt og skellir hurðinni.... jæja stelpur.. ég get ekki sagt að þetta hafi verið REGAL..................

Og svo ég.... búin að vera ömurlega leiðinleg við Herra Tík .... hann mátti sko ekki verða það fullur að við kæmumst ekki til að tæma íbúðina fyrir austan á Sunnudeginum.... ég át það svo svakalega ofan í mig :^).... omg ég var svo veik á sunnudaginn ... aaaarrrggg hélt ekki einusinni niðri vatni.....  :$

ég fór að spá.... var eitthvað samsæri í gangi ..... var alheimsdrottningunum byrlað eitur??????? :klikk:

vonum bara að hlutirnir fari betur í alheimsdrottninga.innfluttningsparty@misstík.is :haha:

SEE YA


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 12:28:47 / mystique

jamm jamm jamm

Hellúúúúúú

Bóndadagur í dag ;) við kallin höldum hann nú venjulega ekki hátíðlegan en mér finnst voða gaman að gera eitthvað fyrir hann.... Hummmm einhverjar hugmyndir 8|

Ég fór með stelpuna til augnlæknis í morgun...... eigum við að ræða hvað það tekur langan tíma.... omg... ég hélt að þetta tæki bara ekki enda, tveir og hálfur tími.

Miss Kattwoman er að flytja til Dannmerkur í sumar. Ég er svona að sætta mig við það. Enda björtu hliðarnar á því eru að maður þarf að fara að minnstakosti tvisvar á ári í heimsókn :lol: 

Með íbúðina...... við ræðum það ekkert :evil:

Ég er búin að vera lasin í vikuni þannig að ég hef ekkert farið í ræktina í þessari viku en fór 4x í síðustu :haha: en búin að vera ágætlega dugleg á kúrnum :$

bless í bili

Túdelú


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 16:13:56 / mystique

Komið nýtt ár!!!

Jæja... þá eru jólin búin og áramótin og allur sá pakki...

Við höfum verið að vinna á fullu í íbúðinni, en samt virðist ekkert ganga :S Ég vona að við flytjum einhverntíman í febrúar.

Alheimsdrottning DP er búin að fá sína íbúð afhenta og er á fullu að mála, gera og græja. Það fer að líða að fyrsta drottninga hitting þar.

Nú ætla ég líka að vera svaka dugleg og nýta þessa 59daga sem ég á eftir af líkamsræktar kortinu mínu... fór í morgun svaka dugleg... :lol: 8)

nóg í bili Túdelú


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 14:39:55 / mystique

Jóla hvað

Góðan dag, góðan dag, glens og grín það er mitt fag, hopp og hí, tra la lí, upp á nefið nú ég sný, ef þú afi gamli kannski fyndir eins og tíu teiknimyndir, viltu setja, viltu setja viltu setja þær tækið í.

Við fjölskyldan erum búin að hafa það mjög gott um jólin... opna fullt af pökkum og sona.... Við gáfum hundunum föt svo þær færu ekki í jólaköttin. Snót fékk svaka flottan rauðan og hvítan bol og Nala fékk rauða háls ól með grænum bjöllum svo auðvitað eins á lappirnar. 

Við fórum auðvitað í Jólaboð, við fórum til ömmu á jóladag og svo til vinar okkar um kvöldið (vorum komin heim klukkan 5 um morgunin :S) og svo til ömmu og afa á annan í jólum.

Nú langar þessa drottningu bara að fara að sofa en nei þá er að mæta í vinnuna 8| og greyjið stelpan mín! það eru bara 3 önnur börn á leikskólanum milli jóla og nýárs :$ ég vildi óska að ég þyrfti ekki að vinna og gæti bara verið með henni :(

Gleðiðeg Jól og hafið það æðislegt um áramótin

By the way skoðið endilega "what famous person do you look like".  Ég og stelpan erum eins og Beoncey Knowls 8), ég hló eins og viltleysingur og prufaði meira að segja 3 mismunandi myndir af mér og alltarf kom Beoncey :haha:.

túdelú


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 10:56:02 / mystique

Sex and the city

 

You Are Most Like Charlotte!

 

You are the ultimate romantic idealist
You've been hurt before, but that hasn't caused you to give up on love.
If anything, your resolve to fall in love is stronger than ever.
And it's this feminine optimism that men find most appealing about you.


Romantic prediction: That guy you are seeing (or crushing on)?

Could be very serious - if you play your cards right!

http://ynr.blogthings.com/whichsexandthecityvixenareyouquiz/

 

Ég gerði svona Sex and the city próf og ég er mest eins og Charlotte… Nehey ég er sko ekkert eins og hún.. Stelpurnar í vinnuni giskuðu á Samantha en kallin minn og vinkona giskuðu á Miranda…… humm what do people think of me.

 

Jæja prufið þetta sjálf og skrifið endilega hér inn hvað kom út úr þessu hjá ykkur…..

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 09:29:52 / mystique

nú er komið að því að blogga

Góðan dag

Ég fékk íbúðina afhenta fyrir 2 vikum síðan og er búin að vera að vinna í henni like crazy....    Enda varla búin að tala við eða sjá drottningarnar mína neitt... Þannig að þið fólk sem ég tala venjulega við eða er í einhverju sambandi við "bare with me" ég verð vonandi búin með þetta í janúar og fer þá að vera í bandi aftur, býð ykkur meira að segja í kaffi 8|.....

Ég gaf mér reyndar tíma til að fara í fyrsta stórafmæli (10ára) hjá dóttir hennar Tony.. Vinkonan var svo sniðug að bjóða mér og stelpuni kl. 15 en öllum öðrum kl. 16.. Þannig að ég fékk að hjálpa... setja skúkkulaði á kökuna og sona....

Þetta er bara stutt og lag gott ´hjá mér núna... vildi bara láta ykkur vita að ég væri enn á Lífi

Bæjó


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
9. febrúar 2012